
Ég ARON LOGI kom í heiminn þann 16. febrúar 2005 kl 23.45 á Landspítalanum. Ég var tæp 14 merkur eða 3478 gr og 52 cm. Ég er með mikið dökkt hár og er algjör gullmoli eða súkkulaðimoli því ég er svo brúnn og flottur. 

Ég var skírður Aron Logi 24. mars 2005. Séra Þórhallur Heimisson skírði mig.
Nafnið Aron er komið úr hebresku (biblíunni) og þýðir hinn sterki. Aron var bróðir Móse og talsmaður hans. Aron er leiðtogi, hreinskilinn og hugrakkur. Hann berst á móti öllu óréttlæti. Hann er líka hneigður til lista.
Logi: Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "logi" sem merkir eldur. Einnig er ég ljósið í lífi mæðra minna og þess vegna fékk ég þetta fallega nafn.

Ég JÓHANNA BJÖRG kom í heiminn 21. ágúst 2009 kl 14.28 í Hreiðrinu á Landspítalanum. Ég var rúmar 18 merkur eða 4520 gr og 55 cm, algjör bolla. Ég er stjernekigger því að ég kom í andlitsstöðu. Ég fæddist með mikið dökkt hár og dimm og stór augu. 

Ég var skírð Jóhanna Björg 10.10.09. Séra Íris Kristjánsdóttir skírði mig.
Jóhanna er nafnið hennar ömmu minnar og ömmu minnar á ská. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir einnig Jóhanna.
Björg er nafnið á hinni ömmu minni og þessi tvö nöfn passa bara svo vel saman.
Þetta eru allt yndislegar konur og það kom því ekki annað til greina en að ég bæri þetta fallega og tilkomumikla nafn.